Vinningshafar í eigendaleik Kia
Fréttir
Vinningshafar í eigendaleik Kia
d.m.Y 2018
Heppnin var með Elisabeth Jóhönnu Zitterbart og Stefáni Lárusi Karlssyni á dögunum en þau voru dregin út í eigendaleik Kia. Þau skráðu sig í eigendaleikinn á heimsíðu Kia eftir að hafa keypt nýjan Kia Picanto á bílasölu Hölds. Alsæl með nýja bílinn og vinninginn halda þau til Rússlands að sjá Ísland spila við Nígeríu í Volgograd þann 22. júní.
Ingimundur Ingimundarson hjá bílasölu Hölds, afhenti þeim gjafabréfið og smelltum við mynd við tilefnið.
Við óskum þeim Elisabeth og Stefáni góðrar ferðar og skemmtunar á leiknum - Áfram Ísland!